26 feb. 2009Úrslitakeppni Iceland Express-deildar kvenna hefst næstkomandi mánudag þegar forkeppni að undanúrslitum byrjar. Í vetur hefur verið keppt eftir nýju fyrirkomulagi sem var samþykkt á ársþingi KKÍ árið 2007. Sex lið fara í úrslitakeppnina en fyrstu tvö sitja hjá í fyrstu umferð en það eru Haukar og Keflavík. Þau lið sem taka þátt í forkeppninni eru KR, Hamar, Valur og UMFG. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer áfram í undanúrslit. Fyrsti keppnisdagur er næstkomandi mánudag þegar Hamar tekur á móti Val í Hveragerði. Daginn eftir, þriðjudag, mætast KR og UMFG í DHL-höllinni. Dagskrá forkeppninnar: · Viðureign Hamars og Vals 1. leikur · 2. mars mánudagur Hamar-Valur kl. 19:15 í Hveragerði 2. leikur · 4. mars miðvikudagur Valur-Hamar kl. 19:15 í Vodafone-höllinni 3. leikur (Oddaleikur ef þarf) · 7. mars laugardagur Hamar-Valur kl. 16:00 í Hveragerði · Viðureign KR og UMFG 1. leikur · 3. mars þriðjudagur KR-UMFG kl. 19:15 í DHL-höllinni 2. leikur · 5. mars fimmtudagur UMFG-KR kl. 19:15 í Grindavík 3. leikur (Oddaleikur ef þarf) · 8. mars sunnudagur KR-UMFG kl. 16:00 í DHL-höllinni