26 feb. 2009Í gær lauk deildarkeppni Iceland Express-deildar kvenna með heillri umferð. Það varð því ljóst hvaða lið leika í forkeppni úrslitakeppninnar í ár en KR og Hamar léku hreinan úrslitaleik um þriðja sætið. Þar sem KR vann í gær fá þær Grindavík í heimsókn í fyrsta leiknum, sem hafnaði í 2 sæti B-riðils. Hamarsstúlkur hefja einnig leik á heimavelli, en þær munu leika gegn Valsstúlkum sem urðu efstar í B-riðli. Vinna þarf tvo leiki í forkeppninni til að komast í 4-liða úrslit þar sem Haukar og Keflavík hafa nú þegar tryggt sér sæti. Lokastaðan í deildinni: 1. Haukar 2. Keflavík -------- 3. KR 4. Hamar 5. Valur 6. Grindavík -------- 7. Snæfell 8. Fjölnir Haukar eru deildarmeistarar en Fjölnir féll í 1. deild að þessu sinni, en þar á efir að ráðast hvaða lið tekur sæti þeirra að ári. Áætlað er að forkeppnin hefjist í kringum 2. mars og svo 4-liða úrslit í kringum 10. mars.