24 feb. 2009Síðasti dagur félagaskipta fyrir leikmenn yngriflokka, sem eru 20 ára og yngri, er laugardagurinn 28. febrúar. Frá og með 1. mars eru öll félagaskipti í þessum flokkum óheimil til loka keppnistímabilsins. Skrifstofa KKÍ er opin til kl. 16:00 alla virka daga, en einnig er hægt að senda beiðnir um félagaskipti á faxi til KKÍ. Faxnúmerið er 514-4101. Á hér á síðunni er hægt að nálgast félagaskiptaeyðublaðið í aðalvalmynd hér til vinstri. Á eyðublaðinu eru allar upplýsingar um hvernig greiða má fyrir félagaskiptin. Umsóknir um félagaskipti eru ekki samþykktar nema að tilgreint sé með greiðslumáta á umsókninni og sé þá annað hvort staðfest af forráðamönnum nýja liðsins eða að kvittun fylgi í tölvupósti á kki@kki.is sé millifært í heimabanka.