22 feb. 2009Í kvöld kl 19.15 mætast Haukar og Hamar í A-riðli að Ásvöllum í Hafnarfirði. Hvernig sem leikurinn fer þá hafa Haukastúlkur tryggt sér deildarmeistartitilinn og munu því taka við honum í leikslok þar sem þetta er síðasti deildarleikur þeirra á heimavelli í ár. Í Vodafone höllinni að Hlíðarenda eigast við Valur og Snæfell í B-riðli Iceland Express-deildar kvenna. Leikurinn hefst einnig kl 19.15. Beina tölfræðilýsingu er hægt að nálgast á [v+]http://www.kki.is/live [v-]kki.is/live[slod-]. Í 2. deild karla eigast við kl 14.00 í Hagaskóla, ReykjavíkurliðinLeiknir og KKF Þórir og kl 16.00 eigast við á sama stað Brokey og Reynir Sandgerði.