20 feb. 2009Mikið verður um dýrðir helgina 28. febrúar og 1. mars en þá verða bikarúrslit yngri flokka. Að þessu sinni verða allir leikirnir í Toyota-Höllinni í Keflavík. Keppt er í níu flokkum í bikarkeppni yngri flokka og á morgun klárast síðustu undanúrslita viðureignirnar. Í kvöld mætast KR og ÍBV kl. 21:00 í 11. flokki karla í DHL-höllinni. Á morgun, laugardag, etja kappi UMFN og KFÍ í Njarðvík í 10. flokki karla. Leikur þeirra byrjar kl. 14:00 en það er síðasta undanúrslita viðureignin. Dagskrá bikarúrslitahelgarinnar: 28. feb laugardagur Kl. 10.00 9. fl. kk. KR-Þór Þ. Kl. 12.00 10. fl. kvk. Keflavik-A - Grindavík Kl. 14.00 11. fl. kk. KR/ÍBV-Fjölnir Kl. 16.00 Ung.fl. kvk. Haukar-KR Kl. 18.00 Ung.fl. kk. Valur-Keflavík 1. mars sunnudagur Kl. 10.00 9. fl .kvk. UMFN-Keflavík Kl. 12.00 10. fl. kk. UMFN/KFÍ-KR Kl. 14.00 St.fl. UMFN-Keflavik-B Kl. 16.00 Dr.fl. Skallagrímur-Fjölnir Það má gera ráð fyrir mörgum spennandi leikjum í Keflavík helgina 28. febrúar og 1. mars.