15 feb. 2009Stjörnumenn urðu í dag bikarmeistarar í fyrsta skipti í sögu félagsins þegar þeir unnu KR-inga í dramatískum leik 76-78. Jovan Zdravevski skoraði 23 stig fyrir Stjörnuna og félagi hans Justin Shouse var með 22 stig. Hjá KR var Jón Arnór Stefánsson með 29 stig og Jakob Sigurðarson skoraði 15 stig. Leikurinn var í járnum allan tímann og örfá stig skildu liðin að mest allan leikinn. KR-ingar voru sjóðandi í upphafi og nýttu sex fyrstu sóknir sínar en Stjörnumenn voru sjaldan langt undan og náðu að jafna og komast yfir í lok fyrsta leikhluta. Eftir það létu þeir ekki forystuna frá sér og unnu 76-78.