14 feb. 2009
Það er oft sagt að úrslitaleikur í bikarkeppni sé stærsti leikur ársins og því má reikna með að spennan sé að magnast hjá þeim liðum sem eiga fulltrúa í leikjunum á morgun. Úrslitaleikir karla og kvenna í Subwaybikarnum fara fram á morgun sunnudag 15. febrúar. Hægt er að kaupa miða í forsölu á [v+]http://midi.is/ithrottir/[v-]midi.is[slod-] Það er alltaf mikil stemning í Laugardalshöll þegar úrslitaleikirnir fara fram svo það ætti enginn alvöru áhugamaður um körfubolta að láta sig vanta. 14:00 KR - Keflavík 16:00 KR - Stjarnan