13 feb. 2009Undirbúningur fyrir úrslitaleikina á sunnudaginn er á lokasprettinum. Aðdáendur og aðstandendur félaganna hafa einnig hitað upp innan sinna raða og hér má sjá nokkur dæmi: Á vef KR er að finna skemmtilega [v+]http://kr.is/karfa/frettir/?ew_0_a_id=319759 [v-]grein[slod-] um daginn og dagskránna sem KR er með fyrir bikarúrslitin. Stjarnan hefur útbúið skemmtilegt myndband fyrir stuðningsmenn sína þar sem einn stuðningsmaður Stjörnunnar er í aðalhlutverki og leikmenn og þjálfari meistarflokks eru í aukahlutverkum. Myndbandið er hægt að sjá [v+]http://www.youtube.com/watch?v=fN3JFHH0P5k [v-]hérna[slod-].