12 feb. 2009Nú rétt í þessu lauk blaðamannafundi KKÍ á Grand Hótel þar sem fjölmiðlar og fulltrúar liðanna mættur. Þjálfarar liðanna sögðu frá því að þeirra lið væru fullmönnuð og væntanlega heilir fyrir leikinn á sunndaginn. Mikil tilhlökkun er í herbúðum beggja liða skiljanlega og ætla öll liðin sér sigur. Hjá körlunum er Stjarnan er í úrslitum í fyrsta sinn. KR-ingar hafa unnið áður en það var síðast árið 1991. Hjá konunum tapaði Keflavík í úrslitum fyrir 2 árum 2007 og stefna því á sigur sem og KR sem vann síðast úrslitaleikina 2002.