12 feb. 2009Nú kl: 14.00 hófst á Grand Hótel Reykjavík blaðamannafundur KKÍ vegna úrslitaleikja karla og kvenna í Subwaybikarnum. Á staðnum eru fjölmiðlar sem og þjálfarar og leikmenn frá hverju liði í úrslitunum sem sitja fyrir svörum og veita viðtöl. Í tilefni af úrslitunum tók Óskar Ófeigur saman nokkra punkta um liðin sem eru í úrslitunum og gengi þeirra í gegnum tíðina. Búið er að setja þetta saman í PDF skjal sem hægt er að nálgast [v+]http://www.kki.is/skjol/bikarurslit09.pdf [v-]hérna[slod-]