5 feb. 2009Þrír leikir voru í Iceland Express-deild kvenna í gærkvöldi. Í A-riðli unnu Haukastúlkur Hamar í Hveragerði 63-72 og sitja því enn á toppi A-riðils. KR-ingar unnu Keflavík í DHL-höllinni 78-74. Einn leikur var í B-riðli en það var viðureign Vals og Snæfells í Stykkishólmi. Valsstúlkur unnu góðan sigur 67-76 og styrktu stöðu sína á toppi B-riðils. Í 1. deild karla var einn leikur en þar fóru Haukar með sigur af hólmi gegn Laugdælum 64-79.