3 feb. 2009Fjarnám ÍSÍ á 1. stigi þjálfaramenntunarinnar fer af stað mánudaginn 16. febrúar næstkomandi. Um er að ræða 60 stunda nám, metið til tveggja eininga enda um sama nám að ræða og kennt er í ÍÞF 102 í framhaldsskólum landsins. Námið tekur átta vikur og er verkefnum skilað vikulega, auk lokaverkefnis. Þátttökugjöld eru kr. 24.000.- og eru þá öll námskeiðsgögn innifalin. Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnskólaprófi. Skráning er á [p+]namskeid@isi.is[p-]namskeid@isi.is[slod-] eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir mánudaginn 16. febrúar. Allar nánari upplýsingar um námið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur sviðsstjóri fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is.