2 feb. 2009Síðasti dagur félagaskipta í meistaraflokki karla og kvenna er fimmtudagurinn 5. febrúar og er hægt að skipta til miðnættis. Frá og með 6. febrúar eru öll félagaskipti í þessum flokkum óheimil til loka keppnistímabilsins. Félagaskipti í yngri flokkunum eru áfram heimil til 28. febrúar. Á morgun er einnig síðasti dagur til að skrá venslasamninga hjá KKÍ á yfirstandandi keppnistímabili. Skrifstofa KKÍ er opin til kl. 16:00 alla virka daga, en einnig er hægt að senda beiðnir um félagaskipti á faxi til KKÍ. Faxnúmerið er 514-4101. Á hér á síðunni er hægt að nálgast félagaskiptaeyðublaðið í aðalvalmynd hér til vinstri. Á eyðublaðinu eru allar upplýsingar um hvernig greiða má fyrir félagaskiptin. Umsóknir um félagaskipti eru ekki samþykktar nema að tilgreint sé með greiðslumáta á umsókninni og sé þá annað hvort staðfest af forráðamönnum nýja liðsins eða að kvittun fylgi í tölvupósti á kki@kki.is sé millifært í heimabanka.