30 jan. 2009Í kvöld fara fram þrír leikir í 1. deild karla og einn hjá konunum. Ármann fer norður á Akureyri og spilar við Þór hjá konunum og mæta þeim svo aftur daginn eftir. Hjá körlunum fer topplið Hamars til Ísafjarðar og leikur við KFÍ kl: 19.15. KFÍ menn eru erfiðir heim að sækja og freista þess að verða fyrsta liðið til að leggja Hamarsmenn að velli í ár. Fyrri leikur þessara liða lauk með 22 stiga sigri Hamars, 122-100 í Hveragerði. Ármenningar taka á móti Valsmönnum í Laugardalshöllinni á sama tíma. Að Ásvöllum mætast Haukar og Hrunamenn en sá leikur hefst kl: 20.30. Höttur tekur svo á móti Fjölni á Egilsstöðum á laugardaginn kl: 15.00. Staðan í 1.deild karla Sæti ·  Lið ·  Stig 1. Hamar 22 2. Valur 16 3. Haukar 16 4. Fjölnir 14 5. Þór Þ. 12 6. KFÍ 12 7. UMFH 8 8. Ármann 6 9. Höttur 4 10. Laugdælir 2