30 jan. 2009Dómaranámskeið KKÍ verður haldið á morgun í Vodafone höllinni að Hlíðarenda og hefst kl: 14.00 í fyrirlestrarsal á 2. hæð. Áætlað er að það standi til kl: 18-19 um kvöldið. Morgunin eftir, sunnudag, verður svo skriflegt próf og eftir það verður dæmt í fjölliðamóti sem fram fer í 7. flokki drengja á sama stað. Þannig munu þeir sem ná 7 í skriflega prófinu og standast verklega þáttinn hljóta C-dómararéttindi. Guðni Eiríkur Guðmundsson dómari mun halda námskeiðið.