28 jan. 2009Drengjalandslið U16 mun koma saman helgina 13.-15. febrúar næstkomandi og æfa saman. Um síðuastu jól var 15 manna hópur valinn eftir æfingar. Núna mun hópurinn koma saman þessa helgi áður en endanlegur 12 manna NM-hópur verður valinn. Æfingar liðsins verða sem hér segir: · Föstudagur 13. febrúar Smárinn, Kópavogi 19:30-21:00 · Laugardagur 14. febrúar Akurskóli, Njarðvík 11:30-13:30 Akurskóli, Njarðvík 14:30-16:30 · Sunnudagur 15. febrúar DHL-höllin, Reykjavík 10:30-12:10 Leikmannahópurinn: Andri Daníelsson framherji · Keflavík Andri Þór Skúlason miðherji · Keflavík Anton Örn Sandholt framherji · Breiðablik Ágúst Orrason bakvörður · Breiðablik Björgvin Ríkharðsson bakvörður · Skallagrímur Emil Karel Einarsson framherji · Þór Þorlákshöfn J. Kormákur Arthursson bakvörður · KR Kristófer Acox framherji · KR Maciej Stanislav Baginski framherji · Njarðvík Matthías Orri Sigurðarson bakvörður · KR Oddur Birnir Pétursson bakvörður · Njarðvík Snorri Hrafnkelsson miðherji · Breiðablik Valur Orri Valsson bakvörður · Njarðvík Þorsteinn Ragnarsson bakvörður · Breiðablik Ægir Hreinn Bjarnason bakvörður · Breiðablik 12 manna hópurinn mun svo æfa undir stjórn Einars Árna Jóhannssonar, þjálfara liðsins um páskana og svo aftur í maí í lokaundirbúningi fyrir NM, en mótið fer fram dagana 20. - 24. maí í Solna í Svíþjóð sem er úthverfi Stokkhólms.