28 jan. 2009Í kvöld mætast Laugdælir og Þór Þorlákshöfn í 1. deild karla á Laugarvatni og hefst leikurinn kl 20.00. Þegar liðin mættust fyrr í vetur höfðu Þórsarar betur 99-87. Nýliðar Laugdæla ætla sér væntanlega að ná í sigur en fyrir leikinn eru þeir í neðsta sæti deildarinnar með 2 stig en Þórsarar stefna á að komast í úrslitakeppnina og eru í 6. sæti með 10 stig. Efsta sætið í 1. deild að lokinni deildarkeppni gefur sæti í Úrvalsdeild að ári en fjögur næstu lið í sætum 2.-5. leika til úrslita um síðasta sætið til að fara upp um deild ásamt deildarmeisturunum. Það er því útlit fyrir spennandi keppni í 1. deildinni í seinni hluta mótsins í ár.