27 jan. 2009Að gefnu tilefni viljum við benda öllum á sem koma að starfinu innan KKÍ að hægt er að nálgast yfirlit yfir mótaplan yngriflokka og keppnisdagatal KKÍ hér á síðunni. Mótaplanið sýnir keppnishelgar í öllum flokkum yngriflokkanna og hvaða helgar eru skipulagðar undir Íslandsmótið. Keppnisdagatalið er svo gott yfirlit yfir leikdaga í meistarflokkum karla og kvenna í Iceland Express-deildunum og í 1.deild karla. Að auki eru þar aðrir helstu viðburðir eins og leikdagar í Subwaybikarnum, yfirlit yfir úrslitakeppnirnar, landsleiki og fleira. Hægt er að nálgast bæði skjölin hér fyrir neðan eða undir „Um KKÍ“ í valmyndinni og undir Mótahald. [v+]http://kki.is/skjol/motaplan_yngriflokka_0809_uppfaert.pdf [v-]Mótaplan yngri flokka[slod-] [v+]http://kki.is/skjol/calendar_2008_2009_lokautgafa.pdf [v-]Keppnisdagatal[slod-]