26 jan. 2009Haldið verður dómaranámskeið næstu helgi í Vodafone höllinni. Námskeiðið fer þannig fram að á laugardaginn er bóklegi hlutinn og á sunnudaginn er svo dæmt í 7. flokk drengja á sama stað. Dómaranefnd KKÍ skipuleggur námskeiðið ásamt Valsmönnum sem sjá um að útvega aðstöðu og eru eins og áður segir með fjölliðamót á sunnudeginum. KKÍ hvetur alla sem hafa áhuga á að fá réttindi að skrá sig. Það er allra hagur að eiga góða dómara sem í hverju félagi þannig að umgjörð móta verður betri og svo geta þeir sem hafa áhuga skráð sig á niðurröðun leikja í eldri aldursflokkum. Vinsamlegast sendið skráninguna á netfangið [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is[slod-] og takið fram: · Nafn · Síma · Heimilsfang · Netfang · Félag (ef eitthvað) Námskeiðið stendur öllum til boða og að kostnaðarlausu í boði KKÍ.