25 jan. 2009Í dag kl 16.00 fóru fram undanúrslit kvenna í Subwaybikarnum og voru það Keflavík og KR sem tryggðu sér réttinn til að leika til úrslita í Laugardalshöllinni 14. febrúar. Keflavík tók á móti Val í Keflavík og hafði sigur 87 - 55. KR stúlkur fóru upp í Borgarnes og unnu Skallagrímsstúlkur 49 - 109. Í kvöld kl 19.15 ræðst svo hvaða lið leikur gegn KR í úrslitaleik karla, en þá mætast Stjarnan og Njarðvík í Garðabænum.