24 jan. 2009Fyrri undanúrslitaleikur í Subwaybikarkeppni karla fór fram í dag þegar KR og Grindavík mættust. KR hafði betur 82:70 og er þar með komið í úrslitaleikinn sem fram fer í Laugardalshöll sunnudaginn 15. febrúar. Á morgun kemur í ljós hvort það verður Stjarnan eða Njarðvík sem mætir KR.