22 jan. 2009Aganefnd KKÍ kom saman í vikunni og tók fyrir nokkrar kærur. Þau Linda Hlín Heiðarsdóttir, Árni Ásgeirsson og Arnþór Pálsson fengu öll eins leiks bann. Linda Hlín, leikmaður Þórs frá Akureyri, fékk einn leik í bann eftir viðureign Skallagríms og Þórs í 1. deild kvenna. Árni og Arnþór fengu einn leik í bann hvor eftir leik Brokey og Mostra í 2. deild karla. Bönnin tóku gildi á hádegi í dag fimmtudag. Úrskurðir [v+]http://www.kki.is/aganefndarmal.asp[v-]aganefndar[slod-].