21 jan. 2009Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, sór embættiseið sinn í gær og hefur því formlega hafið störf í Hvíta húsinu. Barack er liðtækur leikmaður í körfubolta og bárust fréttir af því að þegar hvað mest gekk á í forsetakjörinu á síðasta ári hafi hann af og til dregið fram körfuboltaskónna. Þetta hafi hann gert til að fá útrás og losna við stress. Meðfylgjandi myndband sýnir nokkur tilþrif hjá Barack á vellinum nú fyrir stuttu og hægt er að [v+]http://www.youtube.com/watch?v=_-3ROv_MsNs [v-]sjá myndbandið hér[slod-] á youtube.com vefnum. Einnig er þar myndband frá því þegar hann var í High-School í leik með sínum skóla. [v+]http://www.youtube.com/watch?v=vYCEnVmNkpE [v-]Hér[slod-] leikur hann í blárri treyju númer 23.