20 jan. 2009Á vef FIBAeurope.com stendur yfir kosning á bestu leikmönnum kvenna og karla á liðnu ári. Kosningin fer þannig fram að þú velur þrjá bestu og setur í sæti 1-3 og átt þá möguleika á að vinna Molten körfubolta. Hægt er að [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_qJyWxx-6HdA26oHZUemdf0.html [v-]kjósa hér[slod-] bestu leikmennina í flokki karla og kvenna og einnig er hægt að velja bestu ungu leikmenn karla og kvenna. Meðal þeirra sem eru í kjörinu hjá körlunum í ár eru leikmenn eins og Tony Parker, Pau Gasol, Dirk Nowitzki og íslandsvinurinn Nikola Pekovic frá Svartfjallalandi. Sigurvegarar síðustu ára: Karlar 2007: Andrei Kirilenko 2006: Theo Papaloukas 2005: Dirk Nowitzki Konur: 2007: Anete Jekabsone-Zogota 2006: Maria Stepanova 2005: Maria Stepanova