16 jan. 2009Tveir leikir fara fram í kvöld í 1. deild karla í kvöld. Topplið Hamars fær Ármenninga í heimsókn í Hveragerði en Hamarsmenn eru taplausir á þessu tímabili. Leikurinn hefst klukkan 19:15 Í Þorlákshöfn mætast svo heimamenn og Haukar. Báðir þessir leikir hefjast kl 19.15. Á morgun laugardag verður svo einn leikur, Hrunamenn fá Hött í heimsókn á Flúðir en sá leikur hefst kl 14.00. Staðan í deildinni: Leikir - Stig 1. Hamar 10 - 20 2. Haukar 10 - 16 3. Fjölnir 11 - 14 4. Valur 10 - 14 5. KFÍ 11 - 12 6. Þór Þ. 10 - 8 7. Ármann 10 - 6 8. UMFH 10 - 6 9. Höttur 10 - 4 10. Laugdælir 10 - 2