15 jan. 2009Stöð 2 Sport hefur beinar útsendingar frá Iceland Express deild karla á föstudaginn þegar Keflavík tekur á móti KR. Stefnan er að sýna nokkra leiki frá deildinni áður en kemur að úrslitakeppninni. Næsta beina útsending verður svo mánudaginn 9. febrúar þegar tvö efstu lið deildarinnar Grindavík og KR mætast í Röstinni í Grindavík.