13 jan. 2009Verkefnasjóður ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki fyrir janúar - júní 2009. Um er að ræða styrki sem veittir eru til einstaklinga sem sækja námskeið/fræðslu um íþróttaþjálfun erlendis á fyrrgeindu tímabili. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar næstkomandi og skal umsóknum skilað á þar til gerðum eyðublöðum sem finna má á heimasíðu ÍSÍ, isi.is. Allar nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á netfanginu [p+]vidar@isi.is[p-] vidar@isi.is[slod-].