11 jan. 2009Átta liða úrslit Subwaybikarins hófust í dag með þremur leikjum, tveimur leikjum hjá körlunum og einum hjá konunum. KR-konur tryggðu sér farseðilinn í undanúrslitin með öruggum sigri á Haukum 65-93. Hjá körlunum voru tveir leikir og þar bókuðu KR-ingar sig einnig í undanúrslitin með góðum sigri á Keflavík 95-64. Stjarnan var hitt liðið sem komst í undanúrslit en þeir lögðu Val að velli 116-70 í Ásgarði. Átta liða úrslitin halda áfram á morgun með fjórum leikjum.