9 jan. 2009Stjórn verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir eftir umsóknum um þjálfarastyrki fyrir tímabilið janúar til júní 2009. Styrkirnir verða veittir einstaklingum sem sækja námskeið eða aðra fræðslu í þjálfun erlendis á fyrrgreindu tímabili. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu ÍSÍ og má finna þau [v+]http://www.isisport.is/isinew/um_isi/eydublod/thjalfst.pdf[v-]hér[slod-] og skulu umsóknir berast skrifstofu ÍSÍ merktar „Þjálfarastyrkir vor 2009“ fyrir 1. febrúar næstkomandi. Allar frekari upplýsingar veitir sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is Viljum við hvetja sem flesta körfuknattleiksþjálfara að sækja um.