9 jan. 2009Klukkan 01:00 eftir miðnætti hefst bein útsending frá leik Boston Celtics og Cleveland Cavaliers á Stöð 2 Sport. Það er óhætt að mæla með þessum leik enda tvö af bestu liðum NBA deildarinnar með nokkra af allra bestu leikmenn heims innanborðs. Meistarar Boston byrjuðu leiktíðina frábærlega en hafa verið í töluverðum vandræðum í síðustu leikjum þar sem liðið hefur tapað 6 af síðust 8 leikjum þess. Cleveland hefur hins vegar unnið 8 af síðustu 10 leikjum og eru sem stendur á toppi Austurstrandarinnar.