6 jan. 2009Sigmundur Herbertsson dæmir þann 13. janúar leik í Evrópubikar karla, Eurocup, í Toulon í Frakklandi. Þetta er leikur heimamanna í SAOS Hyeres Toulon og Telekom Baskets Bonn frá Þýskalandi. Meðdómararnir eru frá Lettlandi og Portugal, liðin eru jöfn í öðru sæti í sínum riðli svo að öllum líkindum verður þetta hörkuleikur. KKÍ óskar Sigmundi góðs gengis í leiknum.