6 jan. 2009Í hádeginu í dag var tilkynnt um úrvalslið fyrri umferða Iceland Express-deilda karla og kvenna. Þau Jakob Örn Sigurðarson, leikmaður KR, og Kristrún Sigurjónsdóttir, leikmaður Hauka, voru valin bestu leikmenn fyrri hlutans en lið þeirra sitja á toppi Iceland Express-deildar karla og kvenna. Úrvalslið Iceland Express-deildar karla: Jakob Örn Sigurðarson · KR Cedric Isom · Þór Akureyri Jón Arnór Stefánsson · KR Páll Axel Vilbergsson · UMFG Sigurður Þorsteinsson · Keflavík Besti leikmaðurinn - Jakob Örn Sigurðarson · KR Besti þjálfarinn: Einar Jóhannsson · Breiðablik Dugnaðarforkurinn: Ísak Einarsson · Tindastóll Úrvalslið Iceland Express-deildar kvenna: Slavica Dimovska · Haukar Kristrún Sigurjónsdóttir · Haukar Birna Valgarðsdóttir · Keflavík Svava Ósk Stefánsdóttir · Keflavík Signý Hermannsdóttir · Valur Besti leikmaðurinn - Kristrún Sigurjónsdóttir · Haukar Besti þjálfarinn: Ari Gunnarsson · Hamar Dugnaðarforkurinn: Fanney L. Guðmundsdóttir · Hamar Besti dómari Iceland Express-deildar karla og kvenna: Sigmundur Már Herbertsson