2 jan. 2009Í kvöld kemur í ljós hver verður útnefndur íþróttamaður ársins 2008. Áður en kemur að valinu á íþróttamanni ársins verða íþróttamenn og konur sérsambanda og sérgreinanefnda ÍSÍ heiðraðir. Frá KKÍ verða Helena Sverrisdóttir og Jón Arnór Stefánsson heiðruð. Hápunktur kvöldsins verður svo þegar Íþróttamaður ársins 2008 verður valinn, en það eru meðlimir í samtökum íþróttafréttamanna sem sjá um kosninguna ár hvert. Alls eru 10 íþróttamenn tilnefndir og koma þeir nánast allir úr röðum hópíþrótta í þetta sinn. Við eigum einn fulltrúa á topp 10 en það er Jón Arnór Stefánsson. Bein útsending verður á RÚV sem hefst klukkan 19:40.