1 jan. 2009Körfuknattleiksfólkið Páll Axel Vilbergsson og Jovana Lilja Stefánsdóttir voru kjörin íþróttamenn ársins í Grindavík 2008. Valið var kunngert í hófi sem UMFG hélt í Salthúsinu í Grindavík á Gamlársdag. Þetta er í fyrsta skipti sem kjörið er kynjaskipt. Páll Axel var kjörinn íþróttamaður Grindavíkur þriðja árið í röð. Hann hefur verið lykilmaður í Grindavíkurliðinu og íslenska landsliðinu undanfarin ár. Jovana Lilja var fyrirliði meistaraflokks kvenna og lék vel með íslenska landsliðinu í ár. Þá voru ýmsir aðilar verðlaunaðir enda eitt glæsilegasta íþróttaár í sögu Grindavíkur.