23 des. 2008Í dag var topp 10 listinn opinberaður yfir þá íþróttamenn sem koma til greina sem íþróttamaður ársins 2008. Á listanum er einn körfuknattleiksmaður en það er Jón Arnór Stefánsson sem lék með Roma og KR á árinu sem er að líða. Jón Arnór á það fyllilega skilið að vera á þessum lista og að sjálfsögðu fyndist okkur að Helena Sverrisdóttir eigi að vera þar líka enda hún búin að standa sig frábærlega með landsliðinu og háskólaliði sínu í Bandaríkjunum. En á listanum eru allt frábærir íþróttamenn sem við getum verið stolt af og vill heimasíðan óska þessu frábæra afreksfólki til hamingju með tilnefningarnar.