23 des. 2008Undanfarið höfum við verið að setja inn sögur af leikmönnum og þjálfurum og því kominn tími á að setja inn fróðleik um dómara úr sögunni. [v+]http://en.wikipedia.org/wiki/Dick_Bavetta[v-]Dick Bavetta[slod-] er einn sá allra litríkasti sem hefur lagt flautuna sér til munns. Hann dæmdi í NBA deildinni í 32 ár, samtals 2.164 leikir, 228 leikir í úrslitakeppni og 24 lokaleiki úrslita svo eittvað sé tíundað. Hægt að lesa meira með því að smella á tengla sem eru í fréttinni. Á svona löngum ferli má gera ráð fyrir því að eitt og annað gerist sem gaman er að segja frá. Snemma á ferlinum var Bavetta að dæma leik í úrslitakeppninni á milli New Jersey Nets og Philadelphia 76ers og meðdómari hans í leiknum var Earl Strom annar snillingur sem einnig var tæplega " 100 " ár í deildinni. Í lok leiksins tók Bavetta dóm af Strom sem hafði áhrif á úrslit leiksins og er frægt hvað gerðist í klefa þeirra dómara eftir leik. Allt í einu kom Bavetta hlaupandi út úr klefanum í rifnum dómarabúningi með Strom á eftir sér öskrandi fúkyrði sem eiga ekki alveg við á aðventunni en er hægt að lesa um með því að smella á tengil hér að neðan Í tengslum við Stjörnuleikinn í Las Vegas ákváðu Dick Bavetta og Charles Barkley að safna fé fyrir gott málefni með því að fara í kapphlaup. Bavetta var 68 ára gamall og til í tuskið en þetta voru 3 og hálf ferð. Kapphlaupið má sjá [v+]http://www.youtube.com/watch?v=IA4LZLTrpGA[v-]hér[slod-] Dick Bavetta var umdeildur og lenti í mörgu á ferlinum sem má m.a. lesa um [v+]http://en.wikipedia.org/wiki/Dick_Bavetta[v-]hér[slod-] og svo má einnig finna myndbrot af kappanum [v+]http://www.youtube.com/results?search_query=Dick+Bavetta&search_type=&aq=f[v-]hér[slod-]