20 des. 2008Haukur Helgi Pálsson leikmaður Fjölnis og unglingalandsliðsins hefur vakið gríðarlega athygli síðustu árin. Haukur var valinn besti leikmaðurinn á Norðurlandamótinu í maí sl. og svo vakti hann mikla athygli í æfingabúðum NBA sem fóru fram í Tyrklandi sl. sumar og komst hann m.a. í úrvalslið mótsins. Á Evrópumóti U-16 ára landsliði í ágúst sl. var Haukur í miklu aðalhlutverki og var einn af betri leikmönnum mótsins og var með þeim hæstu í nokkrum tölfræðiþáttum. Ítalska liðið Stella Azzurra sem er unglingalið Roma liðsins sem Jón Arnór lék með sl. tímabil hefur boðið Hauki að leika með því á móti sem ber heitið Meistaradeild unglingaliða á milli Jóla og Nýárs. Þetta er mikill heiður. Hægt verður að fylgjast með Hauki [v+]http://www.euroleague.net/events/nijt/rome[v-]hér[slod-]