18 des. 2008Nú styttist í að fyrri umferðir klárist í Iceland Express deildum karla og kvenna. Eins og í fyrra þá verða umferðir gerðar upp en ákveðið hefur verið að gera upp mótin í tvígang, annars vegar verður valið úr umferðum fyrir áramót og hins vegar úr umferðum eftir áramót. Verðlaunaafhending verður þriðjudaginn 6. janúar eða rétt áður en deildarkeppnir fara aftur af stað eftir áramótin.