17 des. 2008Helena Sverrisdóttir og Jón Arnór Stefánsson hafa verið valin körfuknattleikskona og körfuknattleiksmaður ársins 2008 af KKÍ.
Helena Sverrisdóttir: Haukar / TCU College Bakvörður 20 ára 180 cm • Nýliði ársins í Mountain West háskóladeildinni • Burðarás í íslenska kvennalansliðinu og leiðir B deild Evrópukeppninar í stigum 23.6 á leik og stoðsendingum 5.4 á leik. Að auki er Helena á topp 5 í fjölda annarra tölfræðiþátta • Nú strax á öðru ári með TCU er Helena orðin lykilleikmaður og hefur leitt TCU skólann aftur í topp 25 í landinu sem er mikið afrek. • Helena leiðir lið sitt í stigum 17 á leik, fráköstum 6.2 á leik, stoðsendingum 4,9 og skotnýtingu 55% 2 stiga og 64% 3 stiga
Jón Arnór Stefánsson: Lottomatica Roma - KR Bakvörður 26 ára 196 cm • Lék með Roma í Meistaradeild Evrópu - Byrjunarliðsmaður • Roma komst í 16 liða úrslit Meistaradeildarinnar • Roma lék til úrslita um Ítalíumeistaratitilinn • Jóni var boðið til æfinga með nokkrum NBA liðum sl. sumar • Jón lék vel með íslenska landsliðinu í Evrópukeppnninni. • Jón hefur leikið vel með KR í haust sem hefur ekki tapað leik. KKÍ er stolt að eiga jafn frábæra leikmenn og Helenu og Jón Arnór en þau hafa sýnt að þau eru á meðal fremsta íþróttafólks landsins. Körfuboltafólk ársins frá árinu 1998: 1998: Helgi Jónas Guðfinnsson og Anna María Sveinsdóttir 1999: Herbert Arnarson og Guðbjörg Norðfjörð 2000: Ólafur Jón Ormsson og Erla Þorsteinsdóttir 2001: Logi Gunnarsson og Kristín Björk Jónsdóttir 2002: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir 2003: Jón Arnór Stefánsson og Signý Hermannsdóttir 2004: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir 2005: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir 2006: Brenton Birmingham og Helena Sverrisdóttir 2007: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir 2008: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir Oftast valin Körfuboltamaður ársins:* 6 Jón Arnór Stefánsson (2002, 2003, 2004, 2005, 2007, 2008) 4 Jón Kr. Gíslason (1987, 1989, 1992, 1993) 4 Helena Sverrisdóttir ( 2005, 2006, 2007, 2008) 3 Kristinn Jörundsson (1973, 1975, 1977) 2 Jón Sigurðsson (1976, 1978) 2 Valur Ingimundarson (1984, 1988) 2 Guðmundur Bragason (1991, 1996) 2 Anna María Sveinsdóttir (1994, 1998) 2 Birna Valgarðsdóttir (2002, 2004) * Valið hefur verið tvískipt síðan 1998 en frá 1973 til og með 1997 var aðeins valin einn aðili, karl eða kona, en síðan þá hafa verið valin Körfuknattleiksmaður og Körfuknattleikskona ársins.