16 des. 2008
Leikarinn góðkunni Stefán Karl leikur um þessar mundir söngleiknum um „The Grinch“ sem sýndur er í Boston um þessar mundir. Í fyrrinótt var mikið um að vera í kringum leik Boston og Utah þar sem fór fram fjáröflun fyrir veik börn. Leikarar úr söngleiknum mættu á svæðið og skemmtu áhorfendum og má sjá hér nokkrar myndir af Stefáni í gervi sínu úr söngleiknum. Stefán gerði sér lítið fyrir og hitti meðal annars frá miðju í körfuna og því spurning hvort hann ætti ekki að skipta um starfsvettvang og einbeita sér að körfunni.