16 des. 2008Það verður dregið í 8-liða úrslit í Subwaybikar karla og kvenna í dag klukkan 14:00. Dregið verður í húsakynnum ÍSÍ og eru fulltrúar þeirra félaga sem verða í skálinni góðu velkomið að mæta og fylgjast með. Eftirtalin lið eru eftir: Karlar: Njarðvík, KR, Keflavík, ÍR, Grindavík, Valur, Haukar og ÍBV eða Stjarnan en sá leikur fer fram laugardaginn 20. desember. Konur: Haukar, Keflavík, KR, Valur, Hamar, Fjölnir, Skallagrímur og Hekla.