13 des. 2008Þriggja-stiga keppni karla var með sama sniði og hjá konunum. Gamlar kempur mættu á svæðið og reyndu sig við stjörnur dagsins í dag. 16 keppendur mættu til leiks og komust fjórir þeirra í úrslit. Í úrslitunum var aldrei spurning hver færi með sigur af hólmi en Guðjón Skúlason stórskytta úr Keflavík var heitasti maður dagsins og vann. Ásamt Guðjóni í úrslitum var Magnús Þór Gunnarsson, Tyler Dunaway og Nemanja Sovic. Forkeppni: Magnús Þór Gunnarsson 14 stig Guðjón Skúlason 12 stig Nemanja Sovic 11 stig Tyler Dunaway 11 stig Logi Gunnarsson 10 stig Jón Arnór Stefánsson 10 stig Herbert Arnarsson 10 stig Páll Axel Vilbergsson 9 stig Falur Harðarson 9 stig Vésteinn Sveinsson 8 stig Teitur Örlygsson 8 stig Valur Ingimundarson 8 stig Kristinn Friðriksson 6 stig Jakob Örn Sigurðarson 6 stig Marel Guðlaugsson 6 stig Úrslit: Guðjón Skúlason 15 stig Magnús Þór Gunnarsson 10 stig Tyler Dunaway 9 stig Nemanja Sovic 9 stig