13 des. 2008Úrvalsliðið eða Iceland Express-liðið vann íslenska landsliðið í Stjörnuleik kvenna fyrr í dag [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500003077_1_1[v-]94-103[slod-]. Leikurinn var hin mesta skemmtun og stelpurnar sýndu fína takta. Úrvalsliðið var þó ávallt skrefi framar og var sigur þeirra sanngjarn. Að loknum leik var LaKiste Barkus kjörin besti leikmaður leiksins en hún fór á kostum. Skoraði 32 stig og var hún stigahæst á vellinum. Einnig tók hún 5 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og stal 4 boltum.