12 des. 2008Eins og fram hefur komið verða Stjörnuleikir KKÍ ásamt ýmsum öðrum spennandi uppákomum á Ásvöllum í Hafnarfirði á laugardaginn. Dagskráin hefst klukkan 13:30 með leik A-landsliðs kvenna gegn úrvalsliði Iceland Express og síðan rekur eitt annað eins og fram hefur komið síðustu daga og vikur. KKÍ og samstarfsaðilar þess hafa ákveðið að bjóða landsmönnum á þessa miklu skemmtun og vonandi að fólk fjölmenni enda er margt skemmtilegt og spennandi á dagskrá. Láttu þig ekki vanta á Ásvelli á laugardaginn.