11 des. 2008Úrvalslið Iceland Express sem munu mæta landsliðum karla og kvenna í Stjörnuleikjum KKÍ 2008 hafa verið valin. Benedikt Guðmundsson mun stýra karlaliðinu og Yngvi Gunnlaugsson kvennaliðinu. Þeir kappar fengu fína aðstoð við valið á liðunum en Matthías Imsland forstjóri Iceland Express aðstoðaði þá við valið. Í liðunum er spennandi og athyglisverð blanda af erlendum leikmönnum og ungum og efnilegum leikmönnum sem hafa verið að leika vel í Iceland Express deildunum og svo eru þarna nokkrir sem hafa verið að vekja mikla athygli með yngri landsliðum Íslands. Úrvalslið Iceland Express karla: Jason Dourisseau - KR Nemanja Sovic - Breiðablik Thomas Viglianco - FSU Justin Shouse - Stjarnan Caleb Holmes - Hrunamenn Jason Pryor - Hamar Darri Hilmarsson - KR Rúnar Ingi Erlingsson - Breiðablik Vésteinn Sveinsson - FSU Hjörtur Einarsson - Njarðvík Árni Ragnarsson - FSU Haukur Pálsson - Fjölnir Úrvalslið Iceland Express kvenna: Ashley Bowman – Fjölnir Julia Demirer – Hamar LaKiste Barkus – Hamar Guðbjörg Sverrisdóttir – Haukar Slavica Dimovska – Haukar Telma Fjalarsdóttir – Haukar Hrönn Þorgrímsdóttir – Keflavík Helga Einarsdóttir – KR Sara Sædal Andrésdóttir – Snæfell Íris Sverrisdóttir – UMFG Ólöf Helga Pálsdóttir – UMFG Jóhanna Sveinsdóttir – Hamar Borgarskot til London og Kaupmannahafnar: Eins og vanalega þá mun Iceland Express koma myndarlega að leiknum en 8 heppnir áhorfendur fá tækifæri á Borgarskotinu sem hefur slegið í gegn undanfarnar úrslitakeppnir. Borgarskotin verða upp á ferðir til London og Kaupmannahafnar. Á milli 1. og 2. leikhluta og 3. og 4. leikhluta í hvorum leik verða tveir dregnir út sem fá að spreyta sig. Fleiri frétta er að vænta í dag.