9 des. 2008Hin árlega Firma- og félagakeppni Vals verður að þessu sinni haldin laugardaginn 27. desember 2008. Leikið verður í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Leikið verður á tveimur leikvöllum samtímis utan úrslitaleiksins sem verður leikinn á aðalvellinum. Sigurvegarar fá bikar í verðlaun og auk þess verða gullverðlauna „peningar“ að vanda. Leikið verður að mestu eftir venjulegum körfuboltareglum, nema leikurinn verður 2 X 12 mínútur, og klukkan aðeins stöðvuð síðustu 2 mínúturnar í leiknum. Til að tefja leikinn sem minnst í vítaskotum verður aðeins tekið eitt skot, sem gildir 1, 2 eða 3 stig eftir atvikum. Mótið er eingöngu ætlað leikmönnum 20 ára og eldri og ekki heimilt að hafa leikmenn úr liðum í 1. deild eða Iceland Express-deildinni. Þátttökugjald er 20.000 kr. fyrir hvert lið, sem greiðist í síðasta lagi fyrir fyrsta leik liðs. Innifalið í gjaldinu eru veitingar í VIP-Salnum að Hlíðarenda. Þátttökutilkynningar berist sem fyrst til undirritaðra, sem einnig gefa upplýsingar um hvernig hægt er að greiða þáttökugjöld Með bestu kveðju, Torfi Magnússon tm@ismennt.is Sími: 661-8012 Hannes Birgir Hjálmarsson hbh@talnet.is Sími: 697-5999