5 des. 2008FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið hefur leitað til FIBA Europe, Evrópudeildar körfuboltans til að fá upplýsingar um þá tækni sem er notast við í körfuboltanum til að undirbúa dómara sem best fyrir leiki sem og að bæta frammistöðu þeirra. Framundan er Heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Afríku 2010 og vill FIFA að dómarar fái sem bestu þjálfun og mestan undirbúning fyrir það stóra verkefni. Þetta er mikill heiður fyrir það frábæra starf sem FIBA Europe hefur innt af hendi en þetta er ekki í fyrsta sinn sem FIFA leitar til FIBA Europe vegna ýmissa tæknimála. Greinina má lesa [v+]http://www.fibaeurope.com/coid_2YbnmizdHqE64bNtHPG4W1.container_frontpage.articleMode_on.html[v-]hér[slod-]