5 des. 2008Í kvöld fara fram þrír leikir í 1.deild karla. Á Flúðum taka Hrunamenn á móti nágrönnum sínum Laugdælum. Þessi lið eru nýliðar 1.deildar og því mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Í Hveragerði tekur topplið Hamars á móti Völsurum sem eru í 3.-4.sæti í deildinni ásamt Fjölni. Að Ásvöllum mætast Haukar og KFÍ menn frá Ísafirði. Sá leikur hefst kl 20.00, en hinir tveir hefjast kl 19.15. Á laugardaginn mætast svo Höttur og Ármann á Egilsstöðum kl 15.00, en bæði lið þurfa á sigri að halda þar sem Höttur hefur unnið tvo leiki og Ármann einn.