1 des. 2008Sigmundur Herbertsson heldur áfram að fá úthlutuðum leikjum frá FIBA og framundan eru heilir 2 leikir í desember, en þeir verða allir leiknir í Frakklandi 16.-17. desember næstkomandi. Upprunalega áttu þetta að vera 3 leikir en einum leik hefur verið frestað. Dagskráin hjá Sigmundi er eftirfarandi: Heimaliðin eru öll frá Frakklandi: 16. desmber er það viðureign Cholet Basket gegn Benetton Olympic (Sviss) í Evrópubikar karla. 17. desember Bourge Basket gegn Mizo Pécs 2010 (Ungverjaland) í Meistardeild kvenna. 18. desember mætast Tarbes GB og Bascget ICIM (Rúmenía) í Evrópubikar kvenna. UPPFÆRT: Þessum leik hefur verið frestað! Meðdómarar Sigmundar verða þeir Gianluca Mattioli frá Ítalíu og Haydn Jones frá Wales. Sigmundur hefur haft nóg að gera á þessu tímabili en þetta verða samtals átta leikir fyrir áramót þegar þessir eru meðtaldir. KKÍ óskar Sigmundi góðs gengis í þessum verkefnum.