28 nóv. 2008Beinar útsendingar á Stöð 2 Sport frá NBA deildinni hefjast í kvöld með leik Miami Heat og Phoenix Suns. Leikur Miami og Phoenix hefst klukkan 01:00 eftir miðnætti. Á undan eða klukkan 23:20 er sýndur leikur úr úrslitaeinvígi Los Angeles Lakers og Philadelphia 76ers frá árinu 1980. Magic Johnson var þá í aðalhlutverki í liði Lakers og þurfti m.a. að leysa miðherjastöðu liðsins í fjarveru Kareem Abdul Jabbar.